12 okt Ólafur Kjartan með masterklass í SSD í desember
Ólafur Kjartan Sigurðarson verður gestur okkar 11. desember næstkomandi en þá mun hann halda masterklass fyrir nemendur skólans í Hljómbjörgu.
Ólaf þarf vart að kynna íslenskum söngaðdáendum en hann hefur farið með himinskautum í söngferli sínum síðustu misseri. Eftir frumraun í Bayreuth sumarið 2022 hefur Ólafur tekið flugið en hann söng í m.a. fyrsta sinn við Konunglegu óperuna í London, Covent Garden í janúar á þessu ári. Sem stendur er hann við æfingar við Scala óperuna í Milano þar sem hann fer með hlutverk Captain Bastrode í óperunni Peter Grimes eftir Benjamin Britten.
Næsta sumar mun Ólafur Kjartan syngja hlutverk Kurwenal í óperu Wagners, Tristan und Isolde í Bayreuth en Þorleifur Örn Arnarsson leikstýrir þeirri sýningu.
Ólafur Kjartan hefur áður komið til okkar og kennt masterklass en það er sannarlega heiður fyrir okkur að fá að taka aftur á móti honum í desember. Masterklassinn hefst kl. 18 og stendur til kl. 20.
Sorry, the comment form is closed at this time.