04 maí Guðmundur Karl í Accademia Renato Bruson til hausts
Guðmundi Karli Eiríkssyni sem stundaði nám í Söngskóla Sigurðar Demetz árin 2015-2017 hjá Kristjáni Jóhannssyni hefur síðustu mánuði stundað nám á Ítalíu, nánar tiltekið við hina virtu Accademia Renato Bruson í borginni Busseto.
Guðmundur hóf námið nú í byrjum mars og felur það í sér einkatíma hjá einum af þekktustu baritónsöngvarum Ítalíu síðari ára, Renato Bruson.
Námið er þannig að hann er með okkur öll í sal og gefur hverjum og einum klukkustund til að vinna með. Svipað og masterclass og hver og einn fær u.þ.b. 15 tima með honum á mánuði.
Guðmundur segir Bruson leggjal gríðarlega mikla áherslu á framburð og túlkun en vill lítið vinna með tækni þegar nemendur eru komnir á það stig að stunda nám sitt í Accademia Bruson.
Við fáum í náminu þessa tima hjá honum en auk þess munu koma hingað kennarar/söngvarar og halda masterklassa. Við fáum 3 tíma á viku með coach þar sem okkur er ráðlagt að vinna heilu óperurnar frekar en aríur og svo eru 3 ítölskutímar á viku. Þetta endar svo allt á tónleikum sem eru í lok Júlí.
Dagskrána í akademíunni segir Guðmundur vera vera frekar og stundum komi löng tímabil þar sem hann er í tímum daglega. En hvernig kom það til að Guðmundur fékk inni í Accademia Bruson?
Þetta byrjaði nú bara allt á þvi að eg var að lesa um hann á netinu og langaði að prófa fara í einkatima hjá honum en eg vissi að kennari minn Kristján Jóhannsson þekkti hann frá gamalli tíð. Ég bað hann um að heyra í honum fyrir mig, sem hann gerði og þá kom í ljós að Renato væri með accademiu herna í Busseto og ráðlagði hann mér að sækja þar um . Ég gerði það en þurfti að fara í fyrirsöng sem ég komst ekki í en mér var boðið að byrja á að koma í masterclass hjá honum og það varð til þess að ég komst inn í akademiuna.
Guðmundur gerir ráð fyrir að koma heim eftir að náminu í akademíunni í Busseto en hann gerir ráð fyrir að fljótlega hefjist vinna við að ná í umboðsmann og reyna fyrir sér í heimi óperunnar.
Við óskum Guðmundi Karli til hamingju með frábæran árangur og hlökkum tið heyra af honum fleiri sögur á Ítalíu.
Sorry, the comment form is closed at this time.