Unnsteinn og Eggert Reginn með masterklass í SSD
18564
post-template-default,single,single-post,postid-18564,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.6,vc_responsive

Unnsteinn og Eggert Reginn með masterklass í SSD

Unnsteinn og Eggert Reginn með masterklass í SSD

Unnsteinn Árnason og Eggert Reginn Kjartansson verða með masterclass fyrir nemendur Söngskóla Sigurðar Demetz 11. mars næstkomandi, kl. 17.30.

Unnsteinn hóf sinn tónlistaferil í Tónlistaskóla Mosfellsbæjar og lauk þaðan miðprófi á klassískan gítar undir leiðsögn Kristins Árnasonar. Árið 2008 hóf hann nám við Söngskólann í Reykjavík, var fyrst undir leiðsögn Alexanders Ashworth og síðan Garðars Thórs Corters, Viðars Gunnarssonar og Krystynu Cortes píanóleikara. Árið 2012 fékk Unnsteinn styrk úr Menningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar og árið 2013 vann hann keppnina ,,Ungir Einleikarar“ og söng með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eldborg, Hörpu. Á árunum 2013- 2017 stundaði Unnsteinn áframhaldandi söngnám við tónlistaskólann í Vínarborg undir leiðsögn Karlheinz Hanser. Á námstíma sínum tók hann m.a. þátt í eftirfarandi uppfærslum: Young singer Project við Salzburger Festspile, á einni af stærstu óperuhátíðum heims og 2017 í kammeróperu Theater an der Wien sem Lautsprecher í Kaiser von Atlantis. Unnsteinn varð síðan, að námi loknu, fastráðinn við Tiroler Landestheater í Innsbruck og starfaði þar til ársins 2021. Þar var hann meðal annars í eftirfarandi hlutverkum/óperusýningum: Luther und Crespel/Hoffmanns Erzählungen; Raimondo/Rienzi, Zuniga/Carmen; Pietro/Simon Boccanegra, Lothario/Mignon; Masetto/Don Giovanni, Abimelech/Samson et Dalila; Sparafucile og Monterone/Rigoletto; Eremit/Der Freischütz og Júníus/The rape of Lucretia. Unnsteinn var valin efnilegasti ungi söngvarinn við Austurísku Tónlistarverðlaunin 2019 fyrir túlkun sína á Mr. Kofner í óperunni Der Konsul eftir Menotti. Á leikárinu 2021-2022 söng Unnsteinn Sarastro í Töfraflautunni eftir Mozart í Innsbruck og hlutverkið Polyphem í nýrri óperu Die Odyssee við óperuna í Zürich. Sumarið 2022 söng Unnsteinn við Bregenzer Festspiele, hlutverkin Comissario í Madame Butterfly eftir Puccini og Walinoff/Governatore í Siberia eftir Umberto Giordano. 2023 mun Unnsteinn syngja hlutverk Comissario í Madame Butterfly í nýrri uppfærslu íslensku Óperunnar.

Eggert Reginn Kjartansson hóf söngnám árið 2007 við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Þórunni Guðmundsdóttur. Árið 2013 fluttist hann til Vínarborgar þar sem hann hélt áfram tónlistarnámi við Musik und Kunst Privatuniversität der stadt Wien undir leiðsögn Uta Schwabe hann svo útskrifaðist haustið 2018. Hann tók þátt í ýmsum uppfærslum í skólanum t.d. sem Pygmalion í „Die Schöne Galatee“ (Suppé), St. Brioche í „Die Lustige Witwe“ (Lehár), Baron Adolph von Reintal í „Die Opernprobe“ (Lortzing). Veturinn 2019 ferðaðist hann um Austurríki og Þýskland og sýndi óperettuna „Gräfn Mariza“ (Kálmán) þar sem hann fór með hlutverkið Baron Koloman Zsupán. Eggert hefur einnig sungið tenórsóló í Messías eftir Händel, Magnificat og H-moll messu Bachs og 9. sinfóníu Beethovens. Undan ár hefur hann einnig tekið þátt í barnaútgáfum af hinum ýmsu óperum í leikhúsinu í Baden bei Wien eins og „Der Freischütz“ (Weber) sem Max, Belmonte í „Die Entführung aus dem Serail“ (Mozart) og Alfredo í „La Traviata“ (Verdi). Hann söng einnig í kórnum í fyrrnefndu leikhúsi áður en hann fluttist svo aftur til Íslands vorið 2021

Píanóleikari á masterklass þeirra Eggerts og Unnsteins verður Antónía Hevesi en hann opinn eins og allir okkar masteklassar og gestir velkomnir.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.