Tveimur sýningum bætt við af senum úr óperunni Matrimonio Segreto
17389
post-template-default,single,single-post,postid-17389,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Tveimur sýningum bætt við af senum úr óperunni Matrimonio Segreto

Tveimur sýningum bætt við af senum úr óperunni Matrimonio Segreto

Tvær sýningar verða í þessari viku þar sem nemendur óperudeildar Söngskóla Sigurðar Demetz flytja nokkrar valdar senur úr óperunni Il Matrimonio Segreto eftir Cimarosa í sal skólans, Ármúla 44, 3. hæð. Sýingin var frumsýnd í apríl og nú bætast við nokkrir nýir söngvarar í hlutverkum.

Sýningarnar verða fimmtudagskvöldið 3. maí kl. 20.30 og laugardaginn 5. maí. kl. 16.

Óperan fjallar um ástir og örlög auðugrar fjölskyldu á Ítalíu. Inn í  atburðarásina  fléttast daglegt líf óperudeildarnemenda og drama þeirra.
Óperan er sett upp með óvenjulegum hætti af Bjarna Thor Kristinssyni sem leikstýrir. Um tónlistina sér Antonia Hevesi.

Þetta er þriðja sýning skólans í vetur en þegar hafa verið sýningarnar Hrunadansinn í 3/4 og sýning söngleikjadeildar á Heaters. Nemendur úr báðum deildum tóku þátt í sýningu TMB viðburða á Phantom of the Opera í Eldborg í Hörpu í febrúar en auk þess tóku nokkur nemenda óperudeildar þátt í námskeiðinu Óperusöngvarinn 1 og Óperusöngvarinn 2 sem var haldið í samstarfi við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Það hefur því verið í nógu að snúast hjá nemendum beggja deilda í vetur.

Frumsýningin í apríl vakti mikla kátínu gesta og eru allir velkomnir á þessa vel heppnuðu sýningu nemenda óperudeildar. Aðgangur ókeypis.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.