Söngskóli Sigurðar Demetz sýnir Gianni Schicchi
17045
post-template-default,single,single-post,postid-17045,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Söngskóli Sigurðar Demetz sýnir Gianni Schicchi

Söngskóli Sigurðar Demetz sýnir Gianni Schicchi

Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir óperuna Gianni Schicchi eftir Giacomo Puccini í Tjarnarbíói kl. 19.30 og 21, fimmtudagskvöldið 11. maí.

Gamanóperan Gianni Schicchi fjallar um erfðamál og græðgi Buoso fjölskyldunnar. Moldríkur ættfaðirinn hefur látist og fjölskyldan hefur heyrt orðróm að hann ætli sér að láta klaustri í nágrenninu eftir allar sínar eigur.  Fjölskyldan leitar erfðarskrárnar og kemst að því að orðrómurinn er réttur. Nú eru góð ráð dýr en Rinuccio, einn af skyldmennum hins látna, stingur upp á að leitað verði til Gianni Schicchi sem er þekktur fyrir að vera slóttugur. Eftir langt þref mætir Schicchi á staðinn og upphefst mikið sjónarspil.

Uppsetning óperunnar er mikilvægur liður í starfi skólans og endurspeglar nútímaleg túlkun leikstjórans þá þjálfun sem skólinn leitast við að veita nemendum sínum. Óperan Gianni Schicchi er eitt af lykilverkum Puccinis og verður hún  flutt á ítölsku en verður íslenskum texta varpað á skjá.

Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Thor Kristinsson og hefur Antonía Hevesi verið æfingastjóri tónlistarinnar en hún leikur á báðum sýningum á slaghörpuna. Elsa Waage hefur séð um ítölskuþjálfun og Jóhann Bjarni Pálmason um lýsingu.

Miðasala fer fram á midi.is en einnig er hægt að kaupa miða við innganginn á undan sýningunum á fimmtudagskvöld. Félagar í Vinafélagi Söngskóla Sigurðar Demetz er boðið á sýningu skólans.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.