12 maí Óperudeild SSD sýnir Nótt í Feneyjum
Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir óperettu Johann Strauss sunnudaginn 30. mái í Vonarsal SÁÁ, Efstaleiti 7 í Reykjavík. Sýningar verða tvær sama daginn, kl. 17 og 19.30.
Leikstjóri sýningarinnar og leiðbeinandi í leiklist er Þorsteinn Bachmann og það er Antonía Hevesi sem leikur með söngvurum deildarinnar í þessari þekktu óperettu en hún hefur verið leiðbeinandi þeirra í óperudeild í vetur ásamt Gunnari Guðbjörnssyni. Dansatriðum í sýningunni stýrði Hrafnhildur Eva Guðmundsdóttir.
Miðaverð á sýninguna eru 3000 kr. og 1500 fyrir námsfólk en miða má panta með því að hringja í skrifstofu skólans í síma 5520600 eða senda póst á songskoli@songskoli.is.
Sorry, the comment form is closed at this time.