Inntökupróf í Heimskór æskufólks – World Youth Choir
18547
post-template-default,single,single-post,postid-18547,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.6,vc_responsive

Inntökupróf í Heimskór æskufólks – World Youth Choir

Inntökupróf í Heimskór æskufólks – World Youth Choir

Söngskóli Sigurðar Demetz ásamt Landssambandi blandaðra kóra bjóða ungum söngvurum á Íslandi að sækja um að taka þátt í Heimskór æskufólks eða World youth choir.

Hvað er World youth choir?

Heimskór æskufólks eða World youth choir er kór þar sem koma saman allt að 100 af bestu ungu kórsöngvurum frá öllum heimsins hornum og vinna undir stjórn færustu stjórnenda heims. Aldurstakmark er 17-26 ára. Sótt er um að komast að og mega 12 umsóknir berast frá hverju landi. Kórinn starfar í um 3 vikur á hverju ári og skiptist tíminn í annars vegar æfingatímabil og svo ferðalög þar sem haldnir eru tónleikar, oftast í nokkrum löndum.

Nánari upplýsingar um kórinn má finna á ensku hér fyrir neðan.

Hvenær er næsta tímabil?
Næsta tímabil er frá 18. ágúst til 8. september

Hvert verður ferðast?
Æfingar fara fram í Weikersheim í Þýskalandi og svo verður ferðast um Þýskaland, Ítalíu og Holland til að halda tónleika

Hvað verður sungið?
á dagskrá kórsins árið 2024 verður annars vegar 9. sinfónía Beethovens með Bundesjugendorchester undir stjórn Tan Dun og svo nýtt verk, Nine – ode to compassion eftir Tan Dun undir stjórn Jörn Hinnerk Andersen.

Hvað kostar?
Þátttakendur greiða flugmiða fram og til baka (líklegast til Þýskalands og heim frá Hollandi), auk 100 evru þátttökugjalds (um 15.000 kr). Annað er þeim að kostnaðarlausu, en þó þarf að hafa með sér vasapeninga

Hvernig sæki ég um?
Prufa fyrir WYC 2024 verður haldin í Söngskóla Sigurðar Demetz þann 16. desember næstkomandi kl 14-16. Þátttakendur verða að vera búnir að skrá sig fyrir 10. desember á netfangið hallveig@songskoli.is. Eftir skráningu fá þátttakendur sendar nótur af bút úr 9. sinfóníu Beethovens sem þau þurfa að vera búin að æfa fyrir prufuna. Auk þess syngur hver þátttakandi eina aríu að eigin vali, skala sem sýnir raddbreidd og svo er nótnalestraræfing

Get ég sótt um þó ég sé ekki á höfuðborgarsvæðinu?
Já, svo lengi sem þú hefur kennara eða annan tónlistarmann á svæðinu sem getur hjálpað þér með inntökuprófið. Hafið samband við Hallveigu Rúnarsdóttur í síma 898-4978 til að fá nánari upplýsingar.

World Youth choir bio:
The World Youth Choir (WYC) is an international ensemble of the best young choral singers from all over the world. Established in 1989, it brings together up to 100 remarkable young talents, between the ages of 17 – 26, for a session and tour every year.

The choir is created fresh each year, through a series of competitive national and online auditions, overseen by a professional international jury. Whilst the singers, conductors and locations change annually, the spirit of the WYC always stays intact: and that is one of intercultural understanding, high-level musicianship and international friendship.

Over the course of its 30 years of history, the World Youth Choir had over 1000 participating young singers from 75 different countries, many of whom have gone on to lead extraordinary careers in music. The choir has performed over 300 concerts in 37 different countries and has become a global symbol for peace, unity and harmony; being recognised as a UNESCO Artist for Peace (1996-1998), as well as performing at the Olympic Games (1992, 2008) and Nobel Peace Prize Ceremony (2011). It is a phenomenal educational, artistic and social programme that greatly impacts the lives of young singers as well as the audiences they outreach.

This unique global ensemble is made possible through its founders and patrons: the European Choral Association – Europa Cantat, the International Federation for Choral Music and JM International. Together they guide the WYC Foundation that aims to inspire many more generations of singers through the spirit and music of the World Youth Choir.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.