
23 maí Framhaldsprófstónleikar Natalíu Sifjar – söngleikir
28. september kl. 16:00
Natalía Sif Stefánsdóttir heldur framhaldsprófstónleika sína 25. maí næstkomandi klukkan 13:30. Þetta eru með fyrstu slíkum tónleikum nemanda í söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz eftir að skólinn ákvað að bjóða upp á framhaldspróf í söngleikjum. Natalía Sif hefur starfað af krafti í söngleikjadeildinni í fjölda ára og sló nú síðast algjörlega í gegn sem Gosi í söngleiknum Shrek. Hún heldur nú á vit ævintýranna við háskólanám í söngleikjum í Bretlandi. Allir velkomnir á tónleikasal skólans, Hljómbjörgu á 2. hæð meðan húsrúm leyfir, ókeypis inn.
Facebook viðburður fyrir tónleikana fæst með því að smella hér.
Sorry, the comment form is closed at this time.