Fimm masterklassar í Söngskóla Sigurðar Demetz í haust
16758
post-template-default,single,single-post,postid-16758,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Fimm masterklassar í Söngskóla Sigurðar Demetz í haust

Fimm masterklassar í Söngskóla Sigurðar Demetz í haust

Eins og fram hefur komið bjóðum við masterklassa fyrir nemendur okkar í allan vetur en við hefjum það starf af miklum krafti nú í haust.

Fyrsti gestur okkar í vetur verður bandaríski framleiðandinn og tónlistarmaðurinn Michael J. Moritz en hann mun halda masterklass fyrir söngleikjadeild næstkomandi mánudag 12. september kl. 17 í sal skólans. Viku síðar verður Kolbeinn Jón Ketilsson gestur okkar, 19. September og 31. október kemur Roberta Cunningaham til með halda masterklass. Í nóvember eigum við svo von á fyrrum nemanda okkar sem starfar við óperuhúsið í Linz í Austurríki, Sveini Dúa Hjörleifssyni en í lok þess mánaður mun Hrólfur Sæmundsson miðla nemendum skólans af reynslu sinni. Það eru því spennandi mánuðir framundan hjá nemendum og áhugavert fyrir fólk utan skólans að koma til okkar í heimsókn til að fylgjast með því sem fram fer.

Bandaríski framleiðandinn Michael J. Moritz hefur hlotið fjölda tilnefninga til Tony verðlaunanna og Oliver verðlaunanna í  West End auk  Grammy tilnefninga fyrir plötuframleiðslu. Hann er tónlistarstjóri, leiðbeinandi, útsetjari, píanóleikari og tónlistarflytjandi.

Gefnar hafa verið út ýmsar upptökur af tónlistarflutningi Michael bæði í pop-tónlistargeiranum og í tengslum við tónlistarleikhús. Meðal síðustu verkefna hans var framleiðsla lagsins „What the World Needs Now“, gefið út til góðgerðamála.

Nánar má fræðast um Michael á heimasíðu hans. http://www.michaelmoritz.com/

Bandaríska söngkonan Roberta Cunningham hóf feril sinn sem lýrískur sópran en fékkst síðar við dramatískari hlutverk.  Eftir nám vestanhafs starfaði hún í Evrópu í 25 ár (m.a. í Vín en kenndi auk þess í Berlín Münster,  og Stuttgart). Hún er vinsæll kennari og ferðast víða til að kennslustarfa og heldur reglubundið masterklassa víða í Evrópu og í Bandaríkjunum.

Fljótlega verður einnig ljóst hvaða spennandi leiðbeinendur munu heimsækja okkur á vorönninni.

No Comments

Post A Comment