Söngskóli Sigurðar Demetz | Diplómupróf – Rakel Rósa Ingimundardóttir
18055
post-template-default,single,single-post,postid-18055,single-format-standard,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-9.1.3,wpb-js-composer js-comp-ver-4.11.1,vc_responsive

Diplómupróf – Rakel Rósa Ingimundardóttir

30 jún Diplómupróf – Rakel Rósa Ingimundardóttir

Rakel Rósa Ingimundardóttir lýkur nú diplómuprófi frá söngleikjadeild eftir ötult starf. Hún hóf nám haustið 2015 og hefur leikið frábærlega fjölbreytt safn af hlutverkum í söngleikjum á borð við Óþvegið, 9 to 5, Spring Awakening, Heathers, Kiss Me Kate og nú síðast Into the Woods (Ísl.: Níu til fimm, Vorið vaknar, Heiðarnar, Kysstu mig Kata og Djúpt inn i skóg). Til viðbótar við hlutverkin hefur hún verið virk í framleiðsluteymi deildarinnar og á sérstakan heiður skilið fyrir búningavinnu og leikmynd þetta árið í Djúpt inn í skóg. Skólinn kveður hana með þökk og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.

Engar athugasemdir

Lokað er fyrir innlegg að svo stöddu.