Lokasýning óperunnar Gianni Schicchi verður í Reykjanesbæ
17107
post-template-default,single,single-post,postid-17107,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Lokasýning óperunnar Gianni Schicchi verður í Reykjanesbæ

Lokasýning óperunnar Gianni Schicchi verður í Reykjanesbæ

 

Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir lokasýningu óperunnar Gianni Schicchi eftir Giacomo Puccini í Bergi, Hljómahöllinni í Reykjanesbæ fimmtudagskvöldið 1. Júní kl. 19.30.
Gamanóperan Gianni Schicchi fjallar um erfðamál og græðgi Buoso fjölskyldunnar. Moldríkur ættfaðirinn hefur látist og fjölskyldan hefur heyrt orðróm að hann ætli sér að láta klaustri í nágrenninu eftir allar sínar eigur. Fjölskyldan leitar erfðarskránnar og kemst að því að orðrómurinn er réttur. Nú eru góð ráð dýr en Rinuccio, einn af skyldmennum hins látna, stingur upp á að leitað verði til Gianni Schicchi sem er þekktur fyrir að vera slóttugur. Eftir langt þref mætir Schicchi á staðinn og upphefst mikið sjónarspil.
Gianni Schicchi er eitt af lykilverkum Puccinis og verður óperan flutt á ítölsku en verður íslenskum texta varpað á skjá.
Leikstjóri sýningarinnar er Bjarni Thor Kristinsson og hefur Antonía Hevesi verið æfingastjóri tónlistarinnar en hún leikur á sýningum á slaghörpuna. Elsa Waage hefur séð um ítölskuþjálfun nemendanna.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.