Signý Sæmundsdóttir
16289
page-template,page-template-full_width,page-template-full_width-php,page,page-id-16289,page-child,parent-pageid-15776,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.5,vc_responsive
 

Signý Sæmundsdóttir

Starfsferill

Signý stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Söngskólann í Reykjavík og framhaldsnám í söng við Universität für Musik und darstellende Kunst í Vín þar sem hún lagði jöfnum höndum stund á óperu-, ljóða- og kirkjutónlist og lauk þaðan Diplomprófi vorið 1988.

Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum Íslensku Óperunnar og Þjóðleikhússins. Hún hefur frumflutt íslenska óperutónlist, m.a. Tunglskinseyjuna eftir Atla Heimi Sveinsson í Peking 1997. Signý hefur sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur og haldið fjölda einsöngstónleika ásamt því að flytja samtímatónlist og þar á meðal tónverk sem hafa sérstaklega verið samin fyrir hana. Signý hefur verið gestur á fjölmörgum tónlistarhátíðum bæði hérlendis og erlendis.