Gary Jankowski snýr aftur með einkatíma og masterklass í Söngskóla Sigurðar Demetz
17362
post-template-default,single,single-post,postid-17362,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Gary Jankowski snýr aftur með einkatíma og masterklass í Söngskóla Sigurðar Demetz

Gary Jankowski snýr aftur með einkatíma og masterklass í Söngskóla Sigurðar Demetz

Bandaríski bassasöngvarinn Gary Jankowski sem heimsótti Söngskóla Sigurðar Demetz í fyrra kemur aftur til landsins síðar í þessum mánuði og mun hann halda masterklass mánudaginn 19. Mars frá 17-19.30 hér í skólanum og veita nemendum möguleika á einkatímum.

Nokkrir af útskrifuðum nemendum skólans stunda nú nám hjá Gary í Konunglega listaháskólanum í Antwerpen.

Gary Jankowski á að baki áratuga feril sem söngvari, mestan hluta í Þýskalandi þar sem hann var fastráðinn við óperuhúsin í Nuremberg, Halle/Saale, Freiburg, Rostock og Schwerin. Hann hefur jafnframt komið fram sem gestasöngvari í Leipzig, Donostia/San Sebastian, Peralada, Dorset og  Kiel. og sungið við óperuhúsin Opera de Belles Artes, Mexico City, og Teatro Colón-Ring in Buenos Aires  en hann söng einnig hlutverk Fafners and Hagen í verðlaunauppfærslu Anthony Pilavachi iá Niflngahringnum í Lübeck.Hann hefur unnið me stjórnendum á borð við Kent Nagano, Philippe Jordan, Andriy Yurkevych, Jacques Delacôte, Miltiades Caridis, Roberto Paternostro, Stefan Malzew, Michail Jurowski, og Niksa Bareza. Lesa má um feril Gary Jankowskis á heimasíðu hans.

 

Síðustu ár hefur hann í auknu mæli snúið sér að kennslustörfum en auk þess að hafa haldið masterklassa í Belgíu og Ísrael starfar hann sem söngkennari við Tónlistarháskólann í Antwerpen.

 

Eins og áður segir heldur masterklass sinn í skólanum mánudaginn 20. mars kl 17-19.30 og er hann að venju öllum opinn til áheyrnar. Auk þessa gefst nemendum og gestum kostur að sækja einkatíma hjá honum dagana 17.-20. mars eða á meðan á dvöl hans stendur og geta þeir sem hafa áhuga sent póst á gunnar@songskoli.is til að panta tíma.

Gary Jankowski snýr aftur með einkatíma og masterklass í Söngskóla Sigurðar Demetz

 

Bandaríski bassasöngvarinn Gary Jankowski sem heimsótti skólann í fyrra kemur aftur til landsins síðar í þessum mánuði og mun hann halda masterklass mánudaginn 19. Mars frá 17-19.30 hér í skólanum og veita nemendum möguleika á einkatímum.

Nokkrir af útskrifuðum nemendum skólans stunda nú nám hjá Gary í Konunglega listaháskólanum í Antwerpen.

Gary Jankowski á að baki áratuga feril sem söngvari, mestan hluta í Þýskalandi þar sem hann var fastráðinn við óperuhúsin í Nuremberg, Halle/Saale, Freiburg, Rostock og Schwerin. Hann hefur jafnframt komið fram sem gestasöngvari í Leipzig, Donostia/San Sebastian, Peralada, Dorset og  Kiel. og sungið við óperuhúsin Opera de Belles Artes, Mexico City, og Teatro Colón-Ring in Buenos Aires  en hann söng einnig hlutverk Fafners and Hagen í verðlaunauppfærslu Anthony Pilavachi iá Niflngahringnum í Lübeck.Hann hefur unnið me stjórnendum á borð við Kent Nagano, Philippe Jordan, Andriy Yurkevych, Jacques Delacôte, Miltiades Caridis, Roberto Paternostro, Stefan Malzew, Michail Jurowski, og Niksa Bareza. Lesa má um feril Gary Jankowskis á heimasíðu hans.

 

Síðustu ár hefur hann í auknu mæli snúið sér að kennslustörfum en auk þess að hafa haldið masterklassa í Belgíu og Ísrael starfar hann sem söngkennari við Tónlistarháskólann í Antwerpen.

 

Eins og áður segir heldur masterklass sinn í skólanum mánudaginn 20. mars kl 17-19.30 og er hann að venju öllum opinn til áheyrnar. Auk þessa gefst nemendum og gestum kostur að sækja einkatíma hjá honum dagana 17.-20. mars eða á meðan á dvöl hans stendur og geta þeir sem hafa áhuga sent póst á gunnar@songskoli.is til að panta tíma.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.