Barnadeild Söngskóla Sigurðar Demetz er ætluð söngelskum krökkum á áldrinum 9 til 12 ára. Námskeiðið hefst strax í september og felur í sér söngtíma í hverri viku auk hóptíma.
Margrét Hrafnsdóttir er stjórndi barnadeildar.
Áherslan í náminu er flétta söng- og leiklistarnáms með skemmtilegum æfingum og verkefnum sem dýpka tjáningu og félagshæfni nemendanna.
Gert er ráð fyrir um 45 mínútum í söngtíma sem deilt er með þremur nemendum og verður tími kennslunnar ákveðinn í samráði við nemendur og kennara. Þá mun verða hóptími sem varir í klukkustund og er gert ráð fyrir honum kl. 16.00 á þriðjudögum.
Er ætluð nemendum á aldrinum 12 – 16 ára. Um er að ræða hálft grunnnám sem er ½ klukkustund í einkatíma á viku auk samsöngstíma með píanóleikara. Tónfræði eru 2 klukkustundir í viku hverri en auk þess koma nemendur fram á tónleikum um jól og á vortónleikum.
Áherslan í náminu er á söngnámið en inn í kennsluna verður fléttað leiklistarkennslu til að dýpka tjáningu og félagshæfni nemendanna.
Markmið námsins er áreynslulaus og óþvinguð raddbeiting, tjáning og góð líkamsbeiting en Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir kennir.