Kolbeinn með masterklass næsta föstudag
25832
wp-singular,post-template-default,single,single-post,postid-25832,single-format-standard,wp-theme-bridge,wp-child-theme-bridge-child,bridge-core-3.3.4.6,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.8.8.6,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-8.7.2,vc_responsive

Kolbeinn með masterklass næsta föstudag

Kolbeinn með masterklass næsta föstudag

Kolbeinn Jón Ketilsson verður með masterklass hjá okkurí SSD föstudaginn 6. mars kl. 15.30-18.00.

Kolbeinn er einn þeirra íslensku söngvara sem gert hafa garðinn hvað frægastan á erlendri grund. Hann hefur sungið flest  stærstu og  kröfuhörðustu hlutverk óperubókmenntanna og komið  fram í mörgum af þekktustu óperuhúsum um víða veröld. Þá hefur hann sungið með fjölmörgum heimsþekktum hljómsveitarstjórum m.a.  Zubin Mehta, Lorin Maazel, Anthony Pappano og Kurt Masur. Meðal hlutverka sem Kolbeinn hefur sungið eru titilhlutverkin í Ævintýrum Hoffmanns,  Tannhäuser, Don Carlo sem og  Radamès  í Aidu, Rodolfo í La Bohéme, Cavaradossi í Toscu, Tristan í Tristan og Isolde, Florestan í Fidelio og mörg fleiri. Hann hefur komið fram í Wiener Musikverein í Vínarborg, Tónlistarhátíðinni í Salzburg, Musikhalle í Hamborg, óperhúsum í München, Dresden, Frankfurt, Genf, Toronto, Napoli, París, Lissabon, Kaupmannahöfn, Helsinki að ógleymdri Íslensku Óperunni í Reykjavík. Kolbeinn söng einsöng á opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpunni undir stjórn Vladimir Ashkenazy.

Kolbeinn hefur á síðustu árum komið nokkrum sinnum til okkar og haldið masterklassa og verður fróðlegt að fá þennan góða gest aftur til okkar. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku geta sent póst á gunnar@songskoli.is

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.