Margrét Hrafnsdóttir
18225
page-template,page-template-full_width,page-template-full_width-php,page,page-id-18225,page-child,parent-pageid-15776,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.5,vc_responsive
 

Margrét Hrafnsdóttir

Starfsferill

Margrét Hrafnsdóttir sópransöngkona lauk 8. stigi í söng hjá Sieglinde Kahmann frá Tónlistarskóla Reykjavíkur árið 1998. Hún lauk samhliða því 8. stigi á píanó hjá Selmu Guðmundsdóttur. Margrét lauk söngkennara- og einsöngvaradiplóm frá Tónlistarháskólanum í Stuttgart undir handleiðslu Michiko Takanashi, Robert Hiller og Franzisco Araiza. Einnig lauk hún prófi frá ljóðadeild Tónlistarháskólans í Stuttgart þar sem Cornelis Witthoeft var aðalkennari hennar.

Margrét hlaut styrk hjá Wagner-félaginu í Stuttgart til að halda til Bayreuth og sjá 3 óperur á Bayreuth-tónlistarhátíðinni og í framhaldi af því var henni boðið að halda tónleika hjá Wagner-félaginu. Margrét hefur sótt námskeið hjá fjölmörgum söngvurum, m.a. Elly Ameling og Christoph Pregardien og haldið tónleika í Þýskalandi, Íslandi, Sviss og Ítalíu.

Árið 2007 gaf Margrét geisladisk með íslenskum þjóðlögum með heitinu Hjartahljóð, ásamt Ólöfu Sigursveinsdóttur sellóleikara. Ólöf og Margrét fengu styrk frá Hlaðvarpanum, menningarsjóði kvenna sem nýttur var til smíði lagabálksins Heimtur eftir Ingibjörgu Azimu. Heimtur var frumflutt í Berlín árið 2011 og árið 2015 kom út geisladiskurinn Vorljóð á Ýli með verkum Ingibjargar Azimu, í flutningi Margrétar og fleiri.

English

Margrét Hrafnsdóttir was born in Reykjavik and studied singing with Sieglinde Kahmann in Reykjavik Conservatory of Music and Stuttgart Musikhochschule where professors Takanashi, Araiza and Hiller were her teachers. She also completed a diploma in Lied singing in prof. Witthoeft Lieder class. In Stuttgart Margrét received a scholarship from the Richard Wagner Verband to enjoy three operas at the Bayreuth music festival, followed by a soloconcert for her ein Stuttgart, organized by the Richard Wagner Verband.

Margrét has attended various Masterclasses, led by e.g. Christoph Pregardien and Elly Ameling and has received grants and scholarships to organize and hold concerts in Germany, Switzerland, Italy and Iceland, with various musicians.

 

In the year 2007 Margrét and cellist Ólöf Sigursveinsdóttir released a CD with Icelandic folksonsgs, called Hjartahljóð. Margrét, Ólöf and other musicians have worked closely with composer Ingibjörg Azima and the CD Vorljóð á Ýli from the year 2015 is a collaboration of musicians playing clarinet, cello, accordion, bassoon, double bass and voice.