Baldvin hóf rhythmískt píanónám í Tónsölum sjö ára gamall. Þar stundaði hann nám til fjórtán ára aldurs þegar hann byrjaði í Tónlistarskóla FÍH. Baldvin útskrifaðist frá Tónlistarskóla MÍT (áður FÍH) vorið 2018 þar sem hann lærði undir handleiðslu Eyþórs Gunnarssonar og Vignis Þórs Stefánssonar. Baldvin lauk B.A. gráðu í djasspíanóleik frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Stokkhólmi vorið 2021 þar sem hann lærði hjá Lars Jansson og Adam Forkelid.
Baldvin hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin árið 2017 sem bjartasta vonin í djass og blús í kjölfar plötu sinnar “Renewal” sem kom út árið áður.
Auk þess að vinna sem pródúsent í hljóðverum og hljómborðsleikari á sviði með listamönnum á borð við HipsumHaps, Sturla Atlas, ClubDub, Unnstein Manuel, Kristínu Sesselju, Auður, Herra Hnetusmjör, Snny, Siggu Ózk, Malen, Ágústu Evu, Salóme Katrínu, Salsakommúnunni og Draumförum hefur Baldvin komið margoft fram sem djasspíanóleikari og gefið út djassplötur.
Baldvin hefur einnig komið fram með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, Hamrahlíðarkórnum, Léttsveit Reykjavíkur, Diddú, Bergþóri Pálssyni og fleirum sem meðleikari.