Við notum vafrakökur samkvæmt Evrópulögum. This website uses cookies to improve your experience. We'll assume you're ok with this, but you can opt-out if you wish. Read More

Ragnar hóf tónlistarnám sitt snemma en hann lærði fyrst á selló frá 4 ára til 18 ára aldurs og svo píanó áður en hann gerði tónsmíðar að sínu fagi. Hann hefur tekið þátt í kórastarfi frá unga aldri, var frá 8 ára til 14 ára í Drengjakór Reykjavíkur og svo frá 16 ára til 20 ára í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Árið 2020 sótti hann nám í Listaháskóla Íslands í hljóðfæra tónsmíðum og og tók þaðan bakklárgráðu árið 2023.
Ragnar hefur starfað mikið í grasrót tónlistamenningar sem myndast hefur á síðasta áratug í Reykjavík. Þar má sérstalega nefna menningafélagið Post-dreifingu og nýlega tók Ragnar einnig sæti í skipulagsnefnd Hátíðni, listahátíð sem hefur verið haldin árlega frá árinu 2018 og á Borðeyri.
Ragnar vinnur undir listamannanafninu Rakur og gefur út sína fyrstu plötu ásamt hljómsveit vorið 2026.