Eyjólfur Eyjólfsson
16265
page-template,page-template-full_width,page-template-full_width-php,page,page-id-16265,page-child,parent-pageid-15776,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.7.2,vc_responsive
 

Eyjólfur Eyjólfsson

Starfsferill

Eyjólfur Eyjólfsson lauk burtfararprófi í flautuleik og söng frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og MMus gráðu frá Guildhall School of Music and Drama. Hann stundaði einnig nám við Háskóla Íslands þaðan sem hann lauk meistaraprófi í þjóðfræði. Eyjólfur hefur undanfarið misseri rannsakað og kynnt íslenska langspilið með sérstakri áherslu á notagildi þess í grunnskólakennslu.

Fyrsta sviðsreynsla Eyjólfs var sem hundurinn Spakur í söngleiknum Kolrassa eftir dr. Þórunni Guðmundsdóttur og fáeinum árum síðar þreytti hann frumraun sína á fjölum Íslensku óperunnar sem Skáldið í Skuggaleik Karólínu Eiríksdóttur og Sjóns. Meðal annarra hlutverka Eyjólfs á sömu fjölum má nefna Sellem í The Rake's Progress og Peppe í Pagliacci, og Don Curzio í Brúðkaupi Fígarós sem var sýnt í Þjóðleikhúsinu. Eyjólfur tók þátt í frumflutningi óperunnar Ragnheiðar eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson í Skálholti þar sem hann söng hlutverk Daða. Á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði söng Eyjólfur hlutverk Spóans í frumflutningi ævintýraóperunnar Baldursbráar eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson. Baldursbrá var síðar flutt í Hörpu snemma hausts 2015 í samstarfi við Íslensku óperuna. Í sama húsi síðasta haust fór Eyjólfur með hlutverk Loka Laufeyjarsonar í óperunni Þyrmskviðu eftir Jón Ásgeirsson og var í kjölfarið tilnefndur í annað sinn til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem „söngvari ársins“. Á óperusviðum erlendis hefur Eyjólfur farið með hlutverk hjá Opera North í Leeds, English National Opera í London og English Touring Opera.

Eyjólfur er virkur óratoríusöngvari bæði hér heima og víða um Evrópu. Hann fór með tenórhlutverk í Messíasi eftir Handel á tónleikaferðalagi um Norðurlöndin með Camerata Øresund og í Matteusarpassíu Bachs í Sant’Ambrogio basilíkunni í Mílanó. Á ljóðasöngssviðinu hefur Eyjólfur starfað með píanóleikurum á borð við Önnu Guðnýju Guðmundsdóttir, Dalton Baldwin, Eugene Asti og Rudolf Jansen. Hann söng Vetrarferðina eftir Schubert í samnefndu dansverki eftir brasilíska danshöfundinn Samir Calixto á Holland Dance Festival.

Söng Eyjólfs má finna á fjölmörgum geisladiskaupptökum. Þar á meðal eru Íslandsminni –lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hallgrímssonar, Aldarblik – hátíðarútgáfa á íslenskum einsöngslögum í tilefni 100 ára kaupstaðarafmæli Hafnarfjarðarbæjar, … og fjöllin urðu kyr – hátíðardagskrá flutt á 20 ára afmæli Mosfellsbæjar og upptaka BIS-útgáfunnar á Aftansöngvum (Vespers) Rachmaninoffs ásamt Hollenska útvarpskórnum.
Meðal helstu verkefna á þessu starfsári eru tónleikar með tónlistarhópnum Nordic Affect og samstarfsverkefni með Sinfóníuhljómsveit Íslands.