Agnar Már Magnússon
16787
page-template,page-template-full_width,page-template-full_width-php,page,page-id-16787,page-child,parent-pageid-15776,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.7.2,vc_responsive
 

Agnar Már Magnússon

Starfsferill

Agnar lauk burtfararprófi frá tónlistarskóla FÍH og Conservatorium van Amsterdam og hélt þaðan til New York í einkanám hjá djasspíanistanum Larry Goldings. Hann er einnig með mastersgráðu í tónsmíðum frá LHÍ.

Agnar hefur sent frá sér 7 plötur í eigin nafni. Agnar hefur margoft verið tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna og þrisvar hlotið þau.

Agnar hefur starfað með heimsklassa djasstónlistarmönnum. Þar má nefna Bill Stewart, Ben Street, Seamus Blake, Chris Cheek, Ingrid Jensen, Drew Gress, John Hollenbeck, Lage Lund, Ari Hoenig og Perico Sambeat.

Agnar á tónlistarferli sínum unnið til ýmissa verðlauna og komist í undanúrslit í Alþjóðlegu djass-píanókeppninni Martial Solal í París haustið 2002. Hann hefur útsett lög fyrir geislaplötur og söngleiki, starfað með Stórsveit Reykjavíkur í mörg ár, leikið á tónleikum hérlendis sem erlendis, og annast tónlistarstjórn í leikhúsi. Agnar sá meðal annars um tónlistina í Söngvaseið, Mary Poppins, Billy Elliot, Matthildi, Emil í Katthoti og Deleríum Búbónis fyrir Borgarleikhúsið. Agnar starfar nú sem djasspíanisti en kennir jafnframt rytmískan píanóleik við MÍT en þar hefur hann starfað (og í FÍH) síðan 2001.

Agnar var útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar árið 2010.