28 jan Jóna G. Kolbrúnardóttir með masterklass í SSD
Jóna G. Kolbrúnardóttir sópransöngkona verður með masterklass fyrir nemendur Söngskóla Sigurðar Demetz föstudaginn 6. febrúar kl. 16-18.30. Meðleikari verður Hrönn Þráinsdóttir.
Jóna útskrifaðist með BA-gráðu árið 2018 frá Universität für Musik und darstellende Kunst í Vín. Jóna hélt síðan áfram í framhaldsnám við Royal Danish Opera Academy og útskrifaðist með meistaragráðu með láði árið 2021 undir handleiðslu Helene Gjerris og Susanna Eken. Jóna hefur verið mjög sýnileg í tónlistarlífinu hérlendis síðustu ár. Hún hefur komið fram sem einsöngvari á þónokkrum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og kemur hún reglulega fram sem einsöngvari með stærstu kórum landsins. Einnig hefur hún haldið fjölda ljóðatónleika og er alltaf að vinna að nýju efni í þeirri grein. Jóna hefur sungið tvö hlutverk við Íslensku óperuna: Grétu í Hans og Grétu eftir E. Humperdinck árið 2018 og Anna í Brothers eftir Daníel Bjarnason árið 2022. Hún söng sitt fyrsta hlutverk við Konunglegu óperuna í Kaupmannahöfn árið 2020, þar sem hún fór með hlutverk Papagenu í uppfærslu Barry Kosky á Töfraflautunni eftir W.A. Mozart.
Jóna er einn af stofnendum Kammeróperunnar sem er óperufélag á Íslandi með það að markmiði að auka framboð á smærri óperuuppfærslum hérlendis. Hún er einnig hluti af Kammerkvartettinum sem hefur nú þegar komið mikið fram í tónlistarlífinu á Íslandi. Í uppfærslum Kammeróperunnar hefur Jóna sungið hlutverk Despinu í Così fan tutte eftir W.A. Mozart, Grétu í Hans og Grétu eftir E. Humperdinck og Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós eftir W.A. Mozart í Borgarleikhúsinu. Hún mun fara með hlutverk Micaelu í Carmen eftir G. Bizet sem verður frumsýnd í Tjarnarbíó 13.febrúar n.k.
Sorry, the comment form is closed at this time.