Eggert Reginn með fyrsta masterklassinn í vetur
24832
wp-singular,post-template-default,single,single-post,postid-24832,single-format-standard,wp-theme-bridge,wp-child-theme-bridge-child,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-8.0,vc_responsive

Eggert Reginn með fyrsta masterklassinn í vetur

Eggert Reginn með fyrsta masterklassinn í vetur

Föstudaginn 14. nóvember mun Eggert Reginn Kjartansson verða með masterklass hjá okkur í SSD. Meðleikari nemenda verður Aladár Rácz.  

Eggert Reginn  hóf söngnám árið 2007 við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Þórunni Guðmundsdóttur. Árið 2013 fluttist hann til Vínarborgar þar sem hann hélt áfram tónlistarnámi við Musik und Kunst Privatuniversität der stadt Wien undir leiðsögn Uta Schwabe hann svo útskrifaðist haustið 2018.

 Í Vínarborg tók hann þátt í ýmsum uppfærslum t.d. sem Pygmalion í „Die Schöne Galatee“ (Suppé), St. Brioche í „Die Lustige Witwe“ (Lehár), Baron Adolph von Reintal í „Die Opernprobe“ (Lortzing). Veturinn 2019 ferðaðist hann um Austurríki og Þýskland og sýndi óperettuna „Gräfn Mariza“ (Kálmán) þar sem hann fór með hlutverkið Baron Koloman Zsupán. Eggert hefur sungið tenórsóló í Messías eftir Händel, Magnificat og H-moll messu Bachs og 9. sinfóníu Beethovens. Hann hefur tekið þátt í barnaútgáfum af hinum ýmsu óperum í leikhúsinu í Baden bei Wien eins og „Der Freischütz“ (Weber) sem Max, Belmonte í „Die Entführung aus dem Serail“ (Mozart) og Alfredo í „La Traviata“ (Verdi). Hann söng einnig í kórnum í fyrrnefndu leikhúsi áður en hann fluttist svo aftur til Íslands vorið 2021. Eggert er einn af stofnendum Kammeróperunnar sem er nýstofnað óperufélag á Íslandi með það að markmiði að auka framboð á smærri óperuuppfærslum hérlendis. Hann fór svo með hlutverk Ferrandos í „Cosi fan tutte“ (Mozart) í fyrstu uppfærslu Kammeróperunar í Iðnó í október 2022. og Gamla Bíó í   febrúar 2023. Október 2023 söng hann prinsinn í Ár og öld eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Í desember 2023 setti Kammeróperan upp aðra uppfærslu sína, Hans og Gréta, og brá Eggert sér í gervi nornarinnar. Hann hlaut svo grímutilnefningu “söngvari ársins” fyrir túlkun sína á Norninni. Í janúar 2024 fór hann með hlutverk Huga í frumflutningi á nýrri íslenskri óperu “Gleðilegi geðrofsleikurinn” eftir Guðmund Stein Gunnarsson. Eggert brá sér í hlutverk Basilio og Don Curzio í nýrri uppfærslu Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu í febrúar 2025. Í mars 2025 söng Eggert tenor sólóið í sálumessu Tryggva M. Baldvinssonar “Heimsljós” í Langholtskirkju. Í Ágúst 2025 stóð Eggert svo í fyrsta sinn fyrir framan Sinfóníuhljómsveit Íslands og söng með henni á Klassíkini okkar.

Masterklassinn hefst kl. 16.30 í sal skólans, Hljómbjörgu, á 2. hæð Ármúla 44 (gengið inn frá Grensásvegi á hlið hússins).

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.