Áætlun óperudeildar
16159
wp-singular,page-template,page-template-full_width,page-template-full_width-php,page,page-id-16159,wp-theme-bridge,wp-child-theme-bridge-child,bridge-core-3.3.4.6,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.8.8.6,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-8.7.2,vc_responsive
 

Áætlun óperudeildar

Sýningar óperudeilda 1 og 2 er í apríl 2025

Óperudeildin skiptist í 1 og 2 í ár og er óperudeild 1 ætluð grunn- og miðstigsnemendum en óperudeild 2 miðstigsnemendum, framhalds- og háskólastigsnemum.

ÓPERUDEILD I

Aðalleiðbeinandi er Þorsteinn Bachmann og tónlistarstjórn er í höndum Einars Bjarts Egilssonar.

Ætlunin er að vinna með nemendum að sýningu þar sem verkefnin verða valin í góðu samráði við nemendur og í samræmi við þann stað sem þeir eru á í námi sínu. Senurnar tengja senur með taltextum sem nemendur skapa saman með leiðbeinanda.

Kennsla fer fram á þriðjudögum kl-17.30 og er 31.900 kr. gjald fyrir þátttökuna.

ÓPERUDEILD II

Síðustu ár hefur Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz opin nemendum annarra skóla.  Deildin er fyrst og fremst hugsuð til þess að nemendur öðlist leiklistarreynslu og að þeir fái tækifæri  tækifæri til að taka sín fyrstu skref á óperusviðinu í óperusýningu, eða sýningu sem er með óperusenum.

Deildin er starfrækt á miðvikudögum kl 17-20 í sal skólans og í lok vetrar erblásið til óperusýningar sem sniðin verður að þeim nemendum sem stunda nám við deildina. Auk þess fer fram í tímunum almenn kennsla í leiklist, sviðsframkomu og ýmsu öðru sem tengist óperusöng.

Gert er ráð fyrir u.þ.b. 15 tímum (3 klst) fyrir jól og 15 eftir jól auk lokaæfinga fyrir sýninguna n.k. vor. Kennarar við deildina eru Bjarni Thor Kristinsson leikstjóri og Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari. Verð fyrir hverja önn er 120.000 kr. Einnig býðst þátttakendum að kaupa 5 söngtíma (45 mín) hjá völdum kennurum skólans.

Óperusýningar SSD síðustu ár hafa verið sýndar í Kópavogsleikhúsinu og er ráðgert að sami háttur verði á í vetur. Síðustu ár hefur deildin ákveðið snemma á vetrinum hvað sýnt verður en í framtíðinni er jafnvel stefnt að því að geta enn fyrr hafið undirbúning og að verkefnin séu þannig ákveðin áður en skólaárið hefst.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Guðbjörnsson í síma 6634239 en einnig er hægt að senda honum fyrirspurnir á netfangið gunnar hjá songskoli.is þar sem einnig er tekið á móti umsóknum.