Áætlun söngleikjadeildar
16170
wp-singular,page-template,page-template-full_width,page-template-full_width-php,page,page-id-16170,wp-theme-bridge,wp-child-theme-bridge-child,bridge-core-3.3.4.6,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.8.8.6,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-8.7.2,vc_responsive
 

Áætlun söngleikjadeildar

Sýning vetrarins: Draumur í dós (Anything Goes)

Söngleikjadeildin vinnur á hverju ári að fjölbreyttu verkefni þar sem nemendur fá tækifæri til að þjálfa samspil söngs, leiks og hreyfingar á sviði. Fyrri hluta vetrar er áhersla lögð á einstaklingsvinnu með söngleikjalögum, sviðsframkomu og túlkun í hóptímum þar sem nemendur vinna bæði með sólóatriði og minni samspilsverkefni. Fyrir áramót eru að auki alls 13 klukkustundir í hóptíma með leikstjóra söngleikjaverks vetrarins þar sem fram fer kennsla í grunnatriðum leiklistar til viðbótar við leiklistarkennslu tengda söngleikjum í öðrum hóptímum.

Eftir áramót hefst undirbúningur að uppsetningu nemendasöngleiks þar sem nemendur vinna sameiginlega að heildstæðri sviðsframleiðslu undir leiðsögn kennara deildarinnar. Í því ferli fá nemendur reynslu af hlutverkavinnu, æfingum og sviðsframkomu sem leiðir að frumsýningu í lok annar.

Kennsla fer fram í einkatímum í söng auk reglulegra hóptíma þar sem lögð er áhersla á sviðsþjálfun, túlkun og samvinnu. Markmið námsins er að efla listrænan þroska nemenda og undirbúa þá fyrir frekara nám eða störf á sviði söngleikja og sviðslista.