
27 ágú
Á morgun, föstudaginn 28. ágúst, verður Söngskóli Sigurðar Demetz settur. Til að forðast óþarfa áhættu ætlum við að streyma setningunni í hóp á Facebook sem kallaður er Kennarar og nemendur Söngskóla Sigurðar Demetz, frekar en hafa viðburð hér í skólanum. Ef nemendur eru ekki enn meðlimir í nefndum hópi biðjum við þá um að sækja um hjá Facebook.
Kennsla hefst mánudaginn 31. ágúst og verða kennarar í sambandi við nemendur fyrir þann tíma eða snemma í næstu viku. Kennarar í hóptímum verða í sambandi við ykkur hvenær þeir hefjast en það er misjafnt eftir fögum og námsstigum en það verður á næstu vikum. Samsöngur hefst mánudaginn 7. september og óperudeildir um miðjan mánuð.
Sorry, the comment form is closed at this time.