Söngskóli Sigurðar Demetz og Listaháskóli Íslands halda saman námskeið í Opna listaháskólanum, Óperusöngvarinn I og Óperusöngvarinn II. Námskeiðslýsingar verður hægt að finna á hér og á heimasíðu Listaháskólans fljótlega og verða þær einnig aðgengilegar á heimasíðu Söngskóla Sigurðar Demetz síðar í þessum mánuði.
Námskeiðin miða að því að veita ungum söngvurum, söngnemendum sem eru þegar í námi á háskólastigi og/eða við það að klára framhaldsstig, innsýn inn í starf óperusöngvarans. Þar verður lögð sérstök áhersla á áheyrnarprufur, undirbúning óperuhlutverka og fróðleik sem tengist faginu t.d. í hinum ólíku löndum þar sem Íslendingar hafa helst sótt sér störf í óperufaginu.