Jón Þorsteinsson með masterklass 19. apríl í Söngskóla Sigurðar Demetz
18018
post-template-default,single,single-post,postid-18018,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Jón Þorsteinsson með masterklass 19. apríl í Söngskóla Sigurðar Demetz

Jón Þorsteinsson með masterklass 19. apríl í Söngskóla Sigurðar Demetz

Jón Þorsteinsson verður gestur okkar hér í Söngskóla Sigurðar Demetz mánudaginn 19. apríl en þá verður í fyrsta sinn í langan tíma mögulegt að hafa masterklass í skólanum

Jón hóf  tónlistarnám ungur að árum hjá Magnúsi Magnússyni í Tónskóla Ólafsfjarðar. Hann stundaði seinna nám hjá Marit Isene við Tónlistarháskólann í Osló í Noregi, við Det Jydske Musikkonservatorium í Árósum og hjá Arigo Pola í Modena á Ítalíu. Hann kom víða fram sem einsöngvari sem og kórsöngvari í útvarps- og óperukórum. Jón hefur starfað í Hollandi frá 1980 og söng hann meðal annars yfir 40 hlutverk á þeim tíma hjá Hollensku ríkisóperunni sem og víðs vegar við óratoríu- og ljóðaflutning. Einnig var hann meðlimur í Óperustúdíói Hollensku ríkisóperunnar frá 1982 til 1985. Jón naut leiðsagnar hollensku söngkonunnar Aafje Heynis frá 1986-1995 og byrjaði sjálfur að kenna upp úr 1982. Frá 1993 hefur hann einbeitt sér að söngkennslu, raddþjálfun og kennslufræði og frá 2008 hefur hann starfað sem prófessor í söng við Tónlistarháskólann í Utrecht í Hollandi. Á árunum 1998 til 2003 og frá 2008 til 2010 stundaði Jón nám við Lichtenberg Institut für angewandte Stimmphysiologie. Hann hefur haldið masterklassa frá 1985 á Íslandi, í Hollandi, Þýskalandi, Danmörku, Bandaríkjunum og Belgíu. Hann kenndi auk þess um nokkurra ára skeið við Jette Parker Young Artist Program við Royal Opera House, Covent Garden í Lundúnum.

Við hlökkum mikið til mánudagsins enda er Jón einn þekktasti söngkennari landsins og margrómaður fyrir alla þá glæsilegu nemendur sem hann hefur sent frá sér í gegnum árin. Meðleikari verður Antonía Hevesi.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.