Gary Jankowski með masterklass og einkatíma í SSD
18276
post-template-default,single,single-post,postid-18276,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Gary Jankowski með masterklass og einkatíma í SSD

Gary Jankowski með masterklass og einkatíma í SSD

Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að bandaríski bassasöngvarinn Gary Jankowski kemur aftur til landsins í næsta mánuði eftir nokkurra ára hlé.

Gary hefur verið aðalkennari hóps nemenda síðustu árin úr Söngskóla Sigurðar Demetz, við konunglegu tónlistarakademíuna í Antwerpen þar sem hann starfar sem professor. Hann kenndi nýlega við Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi en hann verður hér á landi dagana 29.október til 2. Nóvember.   Nemendum tækifæri á að kaupa einkatíma hjá honum þessa daga. Gary verður einnig með masterklass mánudaginn 31. október k. 17.30 í Hljómbjörgu, og geta nemendur geta sótt um að syngja á og er hægt er að sækja um með því að senda póst á gunnar@songskoli.is. EInnig er hægt að senda póst á sama netfang vegna einkatíma.

Gary Jankowski á að baki áratuga feril sem söngvari, mestan hluta í Þýskalandi þar sem hann var fastráðinn við óperuhúsin í Nuremberg, Halle/Saale, Freiburg, Rostock og Schwerin. Hann hefur jafnframt komið fram sem gestasöngvari í Leipzig, Donostia/San Sebastian, Peralada, Dorset og  Kiel. og sungið við óperuhúsin Opera de Belles Artes, Mexico City, og Teatro Colón-Ring in Buenos Aires  en hann söng einnig hlutverk Fafners and Hagen í verðlaunauppfærslu Anthony Pilavachi iá Niflngahringnum í Lübeck.Hann hefur unnið me stjórnendum á borð við Kent Nagano, Philippe Jordan, Andriy Yurkevych, Jacques Delacôte, Miltiades Caridis, Roberto Paternostro, Stefan Malzew, Michail Jurowski, og Niksa Bareza. Lesa má um feril Gary Jankowskis á heimasíðu hans.

Síðustu ár hefur hann í auknu mæli snúið sér að kennslustörfum en auk þess að hafa haldið masterklassa í Belgíu og Ísrael starfar hann sem söngkennari við Tónlistarháskólann í Antwerpen.

Hópur af útskrifuðum nemendum Söngskóla Sigurðar Demetz hafa haldið utan til Antwerpen til náms við  Konunglega listaháskólanum þar í kjölfar þess að hafa sótt tíma hjá honum á síðustu árum hér í skólanum.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.