Gary Jankowski – Einkatímar og masterklass í Söngskóla Sigurðar Demetz
16955
post-template-default,single,single-post,postid-16955,single-format-standard,bridge-core-3.1.1,qode-page-transition-enabled,ajax_fade,page_not_loaded,,qode-child-theme-ver-1.0.0,qode-theme-ver-30.0.1,qode-theme-bridge,qode_header_in_grid,wpb-js-composer js-comp-ver-7.0,vc_responsive

Gary Jankowski – Einkatímar og masterklass í Söngskóla Sigurðar Demetz

Gary Jankowski – Einkatímar og masterklass í Söngskóla Sigurðar Demetz

Næsti gestur okkar hér í Söngskóla Sigurðar Demetz verður bandaríski bassasöngvarinn Gary Jankowski.

Gary Jankowski á að baki áratuga feril sem söngvari, mestan hluta í Þýskalandi þar sem hann var fastráðinn við óperuhúsin í Nuremberg, Halle/Saale, Freiburg, Rostock og Schwerin. Hann hefur jafnframt komið fram sem gestasöngvari í Leipzig, Donostia/San Sebastian, Peralada, Dorset og  Kiel. og sungið við óperuhúsin Opera de Belles Artes, Mexico City, og Teatro Colón-Ring in Buenos Aires  en hann söng einnig hlutverk Fafners and Hagen í verðlaunauppfærslu Anthony Pilavachi iá Niflngahringnum í Lübeck.Hann hefur unnið me stjórnendum á borð við Kent Nagano, Philippe Jordan, Andriy Yurkevych, Jacques Delacôte, Miltiades Caridis, Roberto Paternostro, Stefan Malzew, Michail Jurowski, og Niksa Bareza. Lesa má um feril Gary Jankowskis á heimasíðu hans.

Síðustu ár hefur hann í auknu mæli snúið sér að kennslustörfum en auk þess að hafa haldið masterklassa í Belgíu og Ísrael starfar hann sem söngkennari við Tónlistarháskólann í Antwerpen þar sem fyrrum nemandi okkar Guðmundur Davíðsson stundar hjá honum nám.

Gary heldur masterklass sinn í skólanum mánudaginn 20. mars kl 17-20 og er hann að venju öllum opinn til áheyrnar en auk þess gefst kostur að sækja einkatíma hjá honum dagana 17.-21. mars eða á meðan á dvöl hans stendur og geta þeir sem hafa áhuga sent póst á gunnar@songskoli.is til að panta tíma.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.